Sigurður: Verndari í orrustu.
Eins og sést þá er ég mikil bardagahetja og kann flestar sjálfsvarnar íþróttir. Ég er svona skríðandi tígrisdýr, falinn dreki. Nei nei, þetta er nú bara star wars sverð sem hann Aron frændi lánaði mér.
Hér ætla ég mér að kynna mig fyrir þér síðuskoðari góður. Eins og upphafssíðan benti á þá eru allar líkur á að þú þekkir mig fyrir. En ef svo skemmtilega vildi til að þú þekkir mig ekki neitt þá er hér basic info um mig. Ég held að það sé bara einfaldast að ég taki þykjystu viðtal við sjálfann mig.
Hvert er þitt Fulla nafn? Hææj, hikst. Éég heiti Siggi, Má ekki bjóða þér í glas?(Sigurður Ingi Kristinsson)
Hvenær ertu fæddur Sigurður? Kallaðu mig bara Sigga. Ég fæddist í Reykjavík þann 9. ágúst, 1978
Siggi, hvar áttu heima? Ég á heima í Tulsa, Oklahoma
Hver er maki þinn? Elsku dúllan mín hún Gerður.
Áttu einhver börn Siggi? Nei, engin börn. bara hamstur.
Við hvað starfar þú? Ég er svona á milli starfa eins og er.
Hvert er mesta afrek sem þú hefur framið? Mér tókst einu sinni að koma svarlykli af heilu prófi á blýantinn minn. Gekk vel í það skiptið. Nei annars ég veit það ekki. Ég hlýt að hafa gert eitthvað flottara en það. Ég set það upp um leið og ég fatta eitthvað.
Hver er uppáhalds maturinn þinn? Ég elska steikta ýsu með kartöflum, pönnusteiktum lauk og remúlaði.
En hver er uppáhalds músíkin þín? Ég hef eiginlega ekkert uppáhalds. Það fer alveg eftir því hverni skapi ég er í. Ég get hlustað á flesta músík.
Er eitthvað sem að þú vilt bæta við svona í lokin Siggi? Já það er eitt. Munið að það eru aðeins tvær leiðir til að lifa lífinu, önnur eins og ekkert sé kraftaverk. Hin eins og allt sé kraftaverk.